Sunnudagaskóli kl. 11.

Messa með jólatónum kl. 11. Dr. Dr.Sigurjón Árni Eyjólfsson leikur á saxófón ásamt Þorgrími Þorsteinssyni  á gítar og Ingva Rafn Björgvinssyni á bassa. Sr.Þórhallur Heimisson leiðir messuna

Ensk messaWorship service in English kl. 14. Prestur sr.Tosiki Toma

Jól í Tjaldkirkjunni, jólatónleikar Kórs Breiðholtskirkju kl 20.oo

Kórinn flytur fjölbreytta jóla og aðventu -tónlist undir Stjórn Arnar Magnússonar. Kórinn hefur á að skipa fjölda frábærra söngvara og hljóðfæraleikara sem syngja einsöng með kórnum og leika einnig á hin ýmsu hljóðfæri á tónleikunum með kórnum. Á þessum tónleikum verður meðal annars frumflutt ný útsetning eftir stjórnanda kórsins á fornu jólalagi úr handritinu Hymnodia Sacra, sem er íslenskt sálmahandrit frá 18. öld.  Auk Hildigunnar Halldórsdóttur fiðluleikara og Sverris Guðmundssonar óbóleikara sem bæði syngja í kórnum verður Guðný Einarsdóttir organisti Hjallakirkju kórnum til aðstoðar á þessum tónleikum og leikið verður auk þess á franskt  horn og hið þjólega hljóðfæri langspil. Jólastemning og kertaljós prýða þessa stund sem er endurnærandi fyrir líkhama og sál.