Helgihald 21. apríl
Næsta sunnudag verður messa kl. 11:00. Sr. Bryndís Malla Elídóttir þjónar fyrir altari og prédikar. Félagar úr kór Breiðholtskirkju leiða sönginn undir stjórn Arnar organista. Verið hjartanlega velkomin. Ensk messa alþjóðlega safnaðarins kl. 14:00. Prestar: sr. Toshiki Toma og sr. Pétur Ragnhildarson.
Fermingarmessa 14. apríl
Næsta sunnudag verður ferming kl. 11 í Breiðholtskirkju. Sr. Jón Ómar Gunnarsson og Steinunn Þorbergsdóttir djákni þjóna. Örn Magnússon og kór Breiðholtskirkju leiða tónlistina. Það er alltaf hátíð í kirkjunni þegar ungmenni taka þá ákvörðun að gera Jesú Krist að leiðtoga lífsins og fermast ellefu fermingarbörn á sunnudaginn. Messa Alþjóðlega safnaðarins á ensku kl.14:00. [...]
Hollvinafélag Breiðholtskirkju heldur aðalfund
Hollvinafélag Breiðholtskirkju heldur aðalfund 9. apríl 2024 kl. 20 í Safnaðarsal Breiðholtskirkju. Markmið félagsins er að styðja við safnaðarstarf í Breiðholtskirkju. Á undanförnum árum hefur hollvinafélagið stutt rækilega við starfið og gefið kirkjunni margar dýrmætar gjafir. Dæmi um það eru nýjar sálmabækur og messuskrár. Einnig hefur hollvinafélagið stutt við æskulýðsstarf í söfnuðinum og eldri borgarastarfið. [...]
Viltu styrkja kirkjuna?
Smelltu hér fyrir neðan til þess að sjá hvernig þú getur styrkt Breiðholtskirkju.
Ferming 7. apríl
Næsta sunnudag verður ferming kl. 11 í Breiðholtskirkju. Sr. Pétur Ragnhildarson þjóna fyrir altari. Örn Magnússon og kór Breiðholtskirkju leiða tónlistina. Það er alltaf hátíð [...]
Aðalsafnaðarfundur Breiðholtssóknar 2024
Aðalsafnaðarfundur Breiðholtssóknar verður haldinn í Breiðholtskirkju fimmtudaginn 11. apríl kl. 17:00. Dagskrá: Lögbundin aðalfundarstörf. Önnur mál. Rétt til fundarsetu hafa meðlimir þjóðkirkjunnar sem búsettir eru [...]
Helgihald um bænadaga og páska í Breiðholtskirkju
Skírdagur, 28. mars. Heilög kvöldmáltíð og Getsemanestund kl. 20:00. Prestur sr. Pétur Ragnhildarson. Organisti Örn Magnússon. Bergþóra Lind Ægisdóttir leiðir sönginn. Föstudagurinn langi, 29. mars. [...]