Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11:00. Mikill söngur og gleði. Leiðtogar sunnudagaskólans, Steinunn og Steinunn, leiða sunnudagaskólalögin og fara í leiki og Örn Magnússon situr við orgelið. Eftir stundina býður messuhópurinn upp á kaffi og meðlæti.

Tómasarmessa kl. 20:00. Messan er að þessu sinni jafnframt upphafssamvera árlegrar kristniboðsviku Sambands íslenskra kristniboðsfélaga (SÍK) og verður þema hennar: „Kristur og ég“. Birna Gerður Jónsdóttir, ljósmóðir, kristniboði og varaformaður SÍK, prédikar og Þorvaldur Halldórsson leiðir tónlistina ásamt Tómasarmessusönghópnum. Fyrirbænir, hugleiðing, söngur og gleði. Að messu lokinni verður boðið upp á kaffi og aðra hressingu í safnaðarheimilinu.