Foreldramorgunn milli kl. 10 og 12. Um er að ræða opið hús  í safnaðarheimilinu alla föstudagsmorgna, þar sem foreldrar geta komið með börn sín og átt notalega stund saman.  Góð aðstaða er í og við kirkjuna fyrir vagna og kerrur, einnig eru dýnur og leikföng í safnaðarheimilinu.  Alltaf er notalegt spjall yfir te eða kaffibolla en stundum koma góðir gestir í heimsókn með fræðslu sem snýr að umönnun eða uppeldi barna.  Umsjón með starfinu hefur Emilía G. Svavarsdóttir.

Þorragleði kl.19.00. Það er Hollvinafélagið og starfsfólk Breiðholtskikju sem stendur fyrir viðburðinum að þessu sinni.Kostnaði verður stillt í hóf eins og fyrri daginn og ekkert verður til sparað að gera þetta skemmtilegt. Þeir sem vilja taka þátt þurfa að láta vita í síma kirkjunnar 587 1500 í síðasta lagi miðvikudaginn 27. janúar.