Á þriðja sunnudegi í aðventu, 14. des næstkomandi, klukkan 11:00 verður stund sem hefur fest sig í sessi undanfarin ár og nefnist Jólasöngvar við kertaljós. Þar verður hugljúf jólatónlist í forgrunni.
Sr. Pétur Ragnhildarson þjónar fyrir altari.
Tónlistarkonurnar Íris Rós Ragnhildardóttir og Jóhanna Elísa Skúladóttir syngja og leiða tónlistina.
Sara Björg Sigurðardóttir, formaður íbúaráðs Breiðholts og varaborgarfulltrúi, flytur aðventuhugvekju.
Heitt súkkulaði og smákökur eftir stundina í boði hollvinafélagsins.
Verið hjartanlega velkomin.
