Sunnudaginn 26. apríl verða tvær guðsþjónustur í kirkjunni.

Kl. 11 verður fjölskylduguðsþjónusta í umsjá Steinunnar Þorbergsdóttur, djáknakandídats, Steinunnar Leifsdóttur og Arnar Magnússonar, organista.  Sögð verður saga úr Biblíunni og mikið sungið af sunnudagaskólalögum og barnasálmum. Allir fá fallegan límmiða á nýja bænaplakatið og í lokin verður hressing í safnaðarheimilinu. Athugið að þetta er síðasta fjölskylduguðsþjónustan á þessu vori.

Kl. 20 verður Tómasarmessa sem ber yfirskriftina “Hvar er Guð?“.  Sr. Ragnar Gunnarsson, kristniboði, prédikar og Þorvaldur Halldórsson leiðir tónlistina ásamt sönghópi, en Tómasarmessurnar einkennast af fjölbreyttum söng og tónlist.  Fyrirbænin skipar stóran sess í messunni og hægt er að bera fram fyrirbænaerefni og þiggja fyrirbæn hjá presti, djákna eða öðru bænafólki.  Stór hópur fólks tekur þátt í undirbúningi og framkvæmd messunnar, en Tómasarmessan hefur notið mikilla vinsælda á undanförnum árum og margir sótt styrk og  blessun í boðskap hennar.  Í lok messunnar er boðið upp á te og molasopa í safnaðarheimilinu.  Verið hjartanlega velkomin!