Föstudaginn 9. janúar verður fyrsti foreldramorguninn á þessu ári og verða slíkar samverur síðan milli kl. 10 og 12 alla föstudaga til vors. Um er að ræða opið hús  í safnaðarheimilinu þar sem foreldrar geta komið með börn sín.  Góð aðstaða er í og við kirkjuna fyrir vagna og kerrur, einnig eru dýnur og leikföng í safnaðarheimilinu.  Alltaf er notalegt spjall yfir te eða kaffibolla en stundum koma góðir gestir í heimsókn með fræðslu sem snýr að umönnun eða uppeldi barna.  Umsjón með starfinu hefur Emilía G. Svavarsdóttir.  Sjón er sögu ríkari, verið velkomin á foreldramorgna í Breiðholtskirkju.