Skírdagskvöld: Messa kl. 20 sr. Bryndís Malla Elídóttir þjónar. Minnst verður þess þegar Jesús átti síðustu kvöldmáltíðina með lærisveinum sínum og þvoði fætur þeirra. Í lok messunnar verður Getsemanestund þar sem slökkt er á kertum og munir teknir af altarinu og 5 rauðar rósir settar í staðinn sem minna á sár Krists. Þetta er áhrifamikil stund sem leiðir okkur inn í íhugun píslarsögunnar.
Föstudagurinn langi: Guðsþjónusta kl. 11, sr. Gísli Jónasson þjónar. Píslarsagan verður lesin og íhuguð og Litanía sr. Bjarna Þorsteinssonar sungin.
Páskadagsmorgunn: Hátíðarmessa kl. 8 árdegis, sr. Bryndís Malla Elídóttir þjónar. Þá verður páskakertið tendrað, sem lýsir í kirkjunni næsta árið sem vitnisburður um sigur lífsins. Að messu lokinni verður sameiginlegur morgunverður í safnaðarheimilinu, þar sem allir eru hvattir til að taka með sér eitthvert meðlæti á sameiginlegt morgunverðarhlaðborð. Þessi samvera á páskadagsmorgni er ákaflega ánægjuleg og ómissandi þeim sem eitt sinn hafa tekið þátt. Organisti í öllum athöfnum er Örn Magnússon og kór Breiðholtskirkju syngur.
Guð gefi blessunarrríka bænadaga og gleðilega páska.