Miðvikudaginn 8. maí verður kyrrðarstund kl. 12 sem hefst á því að Örn Magnússon leikur á orgelið.  Síðan er lesið úr Biblíunni, flutt stutt hugleiðing, máltíð Drottins borin fram og fyrirbænastund í lokin.  Bænarefnum má koma á framfæri í síma kirkjunnar eða við presta eða djákna rétt fyrir stundina.  Emilía sér um að bjóða upp á létta hádegishressingu að stundinni lokinni í safnaðarheimilinu þar sem gott tækifæri gefst til þess að spjalla um landsins gagn og nauðsynjar.  Allir eru hjartanlega velkomnir.