Miðvikudaginn 7. mars verður samverustund í félagsskapnum Maður er manns gaman.  Stundin hefst klukkan 13:30 og þá fáum Norbert Muller hjúkrunarfræðing á Heilsustofnun NLFÍ til að fjalla um húmor og hlátur.  Kaffi og kleina í lok stundarinnar.  Allir hjartanlega velkomnir.

Kyrrðar- og bænastund er alla miðvikudaga og hefst hún klukkan 12.  Eftir stundina er boðið upp á létta hádegishressingu.