20 ára afmæli Skaftfellingamessunnar sunnudaginn 15. mars kl. 14, núverandi og fyrrverandi prestar í Skaftafellssýslunum þjóna fyrir altari. Söngfélag Skaftfellinga syngur ásamt félögum úr Samkór Hornafjarðar. Organistar eru Friðrik Vignir Stefánsson og Hrafnkell Karlsson. Messukaffi Skaftfellingafélagsins í Reykjavík gegn vægu gjaldi að messu lokinni. Verið öll hjartanlega velkomin.