Næsta sunnudag verður ekki messa kl. 11:00 líkt og venjulega.
Það verður hins vegar batamessa kl. 17:00. Vinir í bata hafa haft aðstöðu í Breiðholtskirkju í vetur og er þetta messa á þeirra vegum. Uppbyggileg og góð stund.
Fyrir þau sem vilja halda sig við hefðbundna messutímann má benda á guðsþjónustu í Fella- og Hólakirkju kl. 11:00 þar sem frímúrarastúkan Mímir kemur í heimsókn.
Alþjóðlegi söfnuðurinn verður á sínum stað kl. 14:00 með enska messu.
Verið velkomin til kirkju 8. mars.
