Næsta sunnudag verður sameiginleg guðsþjónusta í Fella- og Hólakirkju kl. 11:00.

Sr. Pétur Ragnhildarson sóknarprestur þjónar fyrir altari og prédikar.

Kórinn Vox gospel leiðir tónlistina og safnaðarsönginn undir stjórn Matthíasa V. Baldurssonar, organista og tónlistarstjóra.

Meðhjálpari er Jóhanna Freyja Björnsdóttir.

Kaffisopi og kirkjukex eftir stundina. Verið hjartanlega velkomin.

Guðsþjónustan er sameignileg hjá söfnuðunum í Breiðholtsprestakalli. Næsta sunnudag, 31. ágúst verður sameiginleg messa í Breiðholtskirkju. Dagskráin  framundan í ágúst er eftirfarandi:

  • 24. ágúst – Messa í Fella- og Hólakirkju
  • 31. ágúst – Messa í Breiðholtskirkju.