Sunnudaginn 15. júní verður fyrsta göngumessa sumarsins í Breiðholtskirkju kl. 11, gengið verður frá Seljakirkju kl. 10 með góðri leiðsögn. Messan hefst kl. 11 og leikur Örn Magnússon á orgel – þetta er jafnframt síðasta messa sr. Jóns Ómars Gunnarssonar í Breiðholtsprestakalli í bili. Boðið verður upp á veitingar að athöfn lokinni.