Næsta sunnudag verður ekki messa í Breiðholtskirkju á hefðbundnum tíma heldur verður sameiginleg messa í Fella- og Hólakirkju kl. 14:00. Í messunni kveður sr. Jón Ómar Gunnarsson, sóknarprestur, en hann tekur við starfi prests í Neskirkju frá 1. júlí n.k.
Kveðjumessan verður kl. 14:00 og verður sameiginleg fyrir Fella- og Hólakirkju og Breiðholtskirkju. Organisti verður Arnhildur Valgarðsdóttir, kór Fella-og Hólakirkju syngur og Matthías Stefánsson leikur á fiðlu. Sr. Jón Ómar þjónar fyrir altari ásamt sr. Pétri Ragnhildarsyni.
Sr. Jón Ómar var valinn prestur við Fella-og Hólakirkju í mars 2017 og varð sóknarprestur Fella-og Hólasóknar og Breiðholtssóknar árið 2022.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest á sunnudaginn kl. 14:00 í Fella- og Hólakirkju.