Aðalsafnaðarfundur Breiðholtssóknar verður haldinn í Breiðholtskirkju fimmtudaginn 11. apríl kl. 17:00.

Dagskrá: Lögbundin aðalfundarstörf. Önnur mál.

Rétt til fundarsetu hafa meðlimir þjóðkirkjunnar sem búsettir eru í Breiðholti, þ.e. 109 Reykjavík.

Sóknarnefnd Breiðholtssóknar