Nú er skráning í fermingarfræðslu og fermingar vorið 2024 í fullum gangi og ennþá er hægt að bætast í hópinn. Fræðslan hefst laugardaginn 9. sept með fermingarmóti í Fella- og Hólakirkju. Í næstu viku hefjast svo vikulegir tímar í Breiðholtskirkju, á þriðjudögum kl. 15:00.
Ferming er alltaf stór stund í lífi hvers ungmennis og fermingarfræðslan gott veganesti út í lífið. Við leggjum okkur fram um að gera fermingarveturinn eftirminnilegan, þroskandi og innihaldsríkan og verður boðið upp á fjölmarga skemmtilega viðburði líkt og fermingarferð í Vatnaskóg og fermingarmót með öllum fermingarbörnum í Breiðholti.
Umsjón með fermingarfræðslunni hafa sr. Jón Ómar og sr. Pétur og eru frekari upplýsingar um fræðsluna hér.
Mikilvægt er að þau sem ætla að vera með skrái sig til leiks sem fyrst. Skráning í fermingarfræðslu.