Næsta sunnudag verður messa kl. 11:00.

Sr. Jón Ómar Gunnarsson þjónar fyrir altari og prédikar.

Örn Magnússon leiðir tónlistina ásamt kór Breiðholtskirkju.

 

Síðan verður ensk messa Alþjóðlega safnaðarins klukkan 14:00.
Prestar, Ása Laufey Sæmundsdóttir og Toshiki Toma.
Organisti, Örn Magnússon.

 

Um kvöldið verður svo æskulýðsmessa í Fella- og Hólakirkju kl. 20, enda æskulýðsdagur þjóðkirkjunnar. Sr. Pétur Ragnhildarson leiðir stundina ásamt Nönnu æskulýðsfulltrúa og leiðtogum í barna- og unglingastarfinu. Íris Rós og Jóhanna Elísa hafa umsjón með tónlistinni og leiða bæði almennan söng og flytja tónlistaratriði. Fermingarbörn og foreldrar þeirra eru sérstaklega boðin velkomin. Eftir stundina verður boðið upp á léttar veitingar.