![Fjolskyldugudsthjonusta-277×300](https://www.breidholtskirkja.is/wp-content/uploads/2021/10/Fjolskyldugudsthjonusta-277x300-1.jpg)
Næsta sunnudag verður fjölskylduguðsþjónusta í Fella- og Hólakirkju kl. 11:00.
Sr. Pétur Ragnhildarson leiðir stundina ásamt Ástu Guðrúnu Guðmundsdóttur og Arnhildur organisti leikur undir. Það verður mikið sungið, hlustað á sögu úr Biblíunni og svo mætir brúðan Viktoría með grín og glens. Eftir stundina verður boðið upp á pylsur og hoppukastala. Allar fjölskyldur velkomnar.
Fjölskylduguðsþjónustan er sameiginleg stund safnaðanna í Breiðholtsprestakalli.