Hausthátíð barnastarfsins verður næsta sunnudag kl. 11. Hátíðin verður full af skemmtilegum atriðum og í lokin er boðið upp á pulsuveislu.

Um kvöldið kl. 20 er fyrsta Tómasarmessa vetrarins. Yfirskrift hennar er: Þreytumst ekki í bæninni. Í Tómasarmessum er lífleg tónlist. Matthías Baldursson og Páll Magnússon sjá um hana. Prestar, djáknar og leikmenn þjóna saman í messunni og er hún einstök upplifun fyrir þá sem ekki hafa komið fyr. Það eru Breiðholtskirkja, Félag Guðfræðinema, Kristilega skólahreyfingin, Reykjavíkurprófastsdæmi eystra og Samband íslenskra kristniboðsfélaga sem standa að Tómasarmessunum.