Þriðja göngumessan þjóðkirkjusafnaðanna í Breiðholti í sumar. Gengið verður frá Breiðholtskirkju kl. 10 og að Seljakirkju. Þar er guðsþjónusta kl. 11. Að henni lokinni verða veitingar og akstur að Breiðholtskirkju. Göngumessurnar hafa verið vinsælar og samfélagið ákaflega gott.