Sunnudaginn 25. október verða tvær guðsþjónustur í kirkjunni eins og jafnan er síðasta sunnudag í mánuði:

Kl. 11 verður fjölskylduguðsþjónusta í umsjá í umsjá Steinunnar Leifsdóttur, íþróttakennara og Steinunnar Þorbergsdóttur, djáknakandídats. Sögð verður saga úr Biblíunni, Konni eða aðrir góðir gestir kíkja í heimsókn og mikið verður sungið af sunnudagaskólalögum og barnasálmum við undirleik Sigursveins Magnússonar.  Allir fá fallegan límmiða á plakatið sitt og í lokin verður hressing í safnaðarheimilinu.

Kl. 20 Tómasarmessa – Hvað með kraftaverkin?  Önnur Tómasarmessa vetrarins er helguð þessari mikilvægu spurningu og mun sr. Magnús Björn Björnsson prestur í Digraneskirkju prédika.  Gott tækifæri gefst í Tómasarmessunni til þess að biðja og fá fyrirbæn fyrir því sem hver og einn ber með sér.  Þorvaldur Halldórsson sér um tónlistina og lofgjörðina í messunni ásamt sönghópi.  Tómasarmessan er um margt frábrugðin hefðbundinni sunnudagsmessu og er henni ætlað að gefa nýja nálgun og upplifun þátttakenda á orði Guðs og anda.  Eftir messuna er boðið upp á te og molasopa í safnaðarheimilinu þar sem hægt verður að spjalla saman og ræða nánar um efni messunnar við presta, djákna eða aðra sem tóku þátt í messunni.  Verið velkomin í Tómasarmessurnar í vetur!