Messa kl. 11 sunnudaginn 13. september.  Sr. Gísli Jónasson þjónar.  Örn Magnússon leikur á orgel og kór Breiðholtskirkju syngur.  Tekið verður við samskotum til stuðnings flóttafólki.  Eftir messu er boðið upp á hressingu í safnaðarheimilinu. Allir hjartanlega velkomnir!

Sunnudagaskóli verður á sama tíma í safnaðarheimilinu í umsjá Steinunnar Leifsdóttur, íþróttakennara og Steinunnar Þorbergsdóttur, djáknakandídats.