Sunnudagaskólinn byrjar 6. september kl. 11 og verður í 7. himni í allan vetur.  Umsjón með sunnudagaskólanum hafa Steinunn Þorbergsdóttir, djáknakandídat, og Steinunn Leifsdóttir, íþróttakennari.  Ungir og aldnir byrja saman í kirkjunni en síðan fara sunnudagaskólabörnin niður í safnaðarheimili og eiga þar notalega og skemmtilega stund saman.  Í vetur verður gleðin í fyrirrúmi og einnig verður lög áhersla á bænir og sögur úr Biblíunni.  Allir fá skemmtilegt plakat heim með sér og síðan fallegar myndir til að líma á það og svo er oft boðið upp á mynd til þess að lita eða annað föndur og hressingu í lokin.  Verið velkomin í sunnudagaskólann.