Fyrstu þrjá sunnudagana í júní sameinast söfnuðirnir í Breiðholti í sínum árlegu göngumessum, þar sem gengið er til messu frá einni kirkju til annarrar.  Sunnudaginn 7. júní verður safnast saman við Seljakirkju kl. 19 og gengið  að Fella- og Hólakirkju þar sem messa hefst kl. 20.  Sunnudaginn 14. júní verður gengið frá Fella- og Hólakirkju kl. 19 til messu í Breiðholtskirkju kl. 20.  Sunnudaginn 21. júní verður síðan hringnum lokað með því að ganga frá Breiðholtskirkju kl. 19 og til messu í Seljakirkju sem hefst kl. 20.  Boðið verður upp á kirkjukaffi í lok hverrar messu og að því loknu býðst einnig ökuferð til baka að upphafsstað göngunnar.  Göngumessurnar í júní hafa fest sig í sessi og notið mikilla vinsælda.  Breiðholtið býður upp á margar fallegar gönguleiðir og áhugaverða staði þar sem staldrað verður við og þess notið sem fyrir augu ber.  Allir eru hjartanlega velkomnir og ekki er nauðsynlegt að skrá sig til þátttöku.

  7. júní: Gengið frá Seljakirkju kl. 19  – Messað í Fella- og Hólakirkju kl. 20

14. júní: Gengið frá Fella- og Hólakirkju kl. 19 – Messað í Breiðholtskirkju kl. 20

21. júní: Gengið frá Breiðholtskirkju kl. 19 – Messa í Seljakirkju kl. 20