Kyrrðarstund kl. 12 og léttur hádegisverður í safnaðarheimilinu að stundinni lokinni.  Fyrirbænarefnum má koma á framfæri við sóknarprest í síma 587 1500

Vetur kvaddur kl. 14:00. Kirkjustarf aldraðra í söfnuðunum í Breiðholti og félagsstarfið í Gerðubergi standa fyrir fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá í Breiðholtskirkju í tilefni af því að nú er síðasti vetrardagur. Á eftir er boðið upp á kaffi og meðlæti í safnaðarheimilinu.

Kirkjukrakkastarfið, fyrir 6-9 ára börn kl. 16-17.  Boðið er upp á fylgd frá Bakkaseli í kirkjuna.

TTT fyrir börn á aldrinu 10 til 12 ára kl. 17:30-18:30.