Sunnudagaskóli kl. 11 í umsjá Steinu og Steinunnar. Biblíusaga, söngur, brúður og börnin fá límmiða á bænaplakatið. Hressing í lokin og kaffisopi fyrir foreldrana.

Messa kl. 14 með þátttöku Skaftfellingafélagsins.  Athugið breyttan messutíma! Sr. Gísli Jónasson prédikar og þjónar fyrir altari. Friðrik Vignir Stefánsson leikur á orgelið og Söngfélag Skaftfellinga leiðir sönginn. Messuhópur tekur virkan þátt. Eftir messu verður kaffisala Skaftfellingafélagsins í safnaðarheimilinu.  Allir hjartanlega velkomnir!