Sunnudagaskóli kl. 11. Biblíusaga, söngur, brúður og börnin fá límmiða á nýja bænaplakatið. Hressing í lokin og kaffisopi fyrir foreldrana.

Messa kl. 11.  Sr. Gísli Jónasson þjónar.  Örn Magnússon leikur á orgelið og kór kirkjunnar leiðir sönginn.  Messuhópur tekur virkan þátt.  Tekið við gjöfum til styrktar starfi Hins íslenska Biblíufélags. Molasopi í safnaðarheimilinu að messu lokinni.  Allir hjartanlega velkomnir!