Fyrsta sunnudag í aðventu, 30. nóvember kl. 11, kemur Stoppleikhópurinn í heimsókn og sýnir barnaleikritið „Ósýnilegi vinurinn“.  Einnig verður kveikt á fyrsta aðventuljósinu, Betlehemsfjárhúsið sett upp og sungin nokkur jólalög.    Eftir notalega stund í kirkjunni verður boðið upp á djús og piparkökur í safnaðarheimilinu.