Sunnudaginn 23. nóvember verður Tómasarmessa kl. 20.  Ragnheiður Sverrisdóttir djákni pédikar en yfirskrift messunnar er:  Hver er þinn Guð?  Þorvaldur Halldórsson sér um tónlistina en Tómasarmessurnar einkennast af fjölbreyttum söng og tónlist.  Mikil áhersla er lögð á fyrirbænaþjónustu og virka þátttöku leikmanna.  Stór hópur fólks tekur þátt í undirbúningi og framkvæmd messunnar en Tómasarmessurnar hafa notið mikilla vinsælda á undanförnum árum og margir sótt styrk og  blessun í boðskap hennar.  Í lok messunnar er boðið upp á te og molasopa í safnaðarheimilinu.  Verið hjartanlega velkomin!