Í dag, miðvikudaginn 10. september kl. 13:15, hefst starf eldri borgara í safnaðarheimili kirkjunnar.  Maður er manns gaman er haft að leiðarljósi auk þess sem boðið er upp á fjölbreytta dagskrá.  Samverurnar verða annan hvern miðvikudag í vetur.  Umsjón með starfinu hefur Anna M. Axelsdóttir.  Samverunum lýkur um kl. 15 með því að boðið verður upp á kaffi og meðlæti gegn vægu gjaldi.  Allir eru hjartanlega velkomnir.

Kyrrðarstund er alla miðvikudag kl. 12 og léttur hádegisverður í safnaðarheimilinu að stundinni lokinni.