Messa kl. 11 sunnudaginn 7. september.  Sr. Bryndís Malla Elídóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Gísla Jónassyni.  Örn Magnússon leikur á orgel og kór Breiðholtskirkju syngur.  Vænst er þátttöku fermingarbarna vetrarins og foreldra þeirra.  Að messu lokinni verður foreldrafundur í safnaðarheimilinu þar sem fermingarfræsla vetrarins verður til umræðu og hægt verður að skrá fermingardag barnsins.

Sunnudagaskóli verður á sama tíma í safnaðarheimilinu.