Tilkynning um bænastund við Útvarpshúsið:

Við erum ekki aðgerðasinnar eða mótmælendur. Við erum kristið fólk sem viljum eiga samleið í bæn. Bænin opnar fyrir það fegursta í hjarta okkar og huga. Í þeim anda viljum við hittast á grasbalanum í rjóðrinu norðanvert við Útvarpshúsið í Efstaleitinu á föstudagsmorguninn 22.ágúst kl. 7:30.
Bænin okkar verður þakkar- og fyrirbæn fyrir útvarpi allra landsmanna og menningu þjóðarinnar. Við erum mörg sem viljum eiga þessa helgu stund á föstudagsmorgninum en við eigum ólíka bænahefð, sem endurspeglar fjölbreytileikann í kristinni kirkju. Til þess að við getum skapað samstöðu leggur undirbúningshópurinn til að við setjum stundina upp í anda þeirra helgu stunda sem útvarpað er á Rás 1.

Bæna- og þakkargjörðin hefst þegar tvö rauðlituð hjörtu svífa upp til himins og þá hefst lestur á ritningarorðinu og síðan koll af kolli:
1. Davíðssálmur 23
2. Faðir vor
3. Blessunarorðin
4. Þögn í morgunkyrrðinni þar sem hver fer með sína bæn í hljóði
5. Allir syngja „Í bljúgri bæn“
6. Útvarpsstjóra afhent bænabók og kort í þakklætisskyni og jafnframt fylgir hvatning til að færa morgunbænina aftar á dagskránni, leyfa kvöldorðum að standa og þagga ekki bænamálið í almannarýminu.