Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11, sr. Gísli Jónasson leiðir stundina og Örn Magnússon er organisti.  Sumri verður fagnað með söng og gleði.  Rebbi refur kemur í heimsókn ásamt góðum vini sínum.  Allir fá fallega mynd til þess að lita og hressingu í safnaðarheimilinu í lokin.

Tómasarmessa kl. 20 sem ber yfirskriftina:  Við höfum séð Drottinn!  Skúli Svavarsson kristniboði prédikar og Þorvaldur Halldórsson leiðir tónlistina ásamt sönghópi.  Boðið verður upp á fyrirbæn og lofgjörðarstund.  Ath. að þetta er síðasta Tómasarmessa vetrarins.   Molasopi í safnaðarheimilinu í lok messunnar.

Verið hjartanlega velkomin og takið með ykkur gesti!