Skírdagskvöld:  Messa kl. 20 sr. Bryndís Malla Elídóttir þjónar. Minnst verður þess þegar Jesús átti síðustu kvöldmáltíðina með lærisveinum sínum og þvoði fætur þeirra.  Í lok messunnar verður Getsemanestund þar sem slökkt er á kertum og munir teknir af altarinu og 5 rauðar rósir settar í staðinn sem minna á sár Krists.  Þetta er áhrifamikil stund sem leiðir okkur inn í íhugun píslarsögunnar.

Föstudagurinn langi:  Guðsþjónusta kl. 11, sr. Gísli Jónasson þjónar.  Píslarsagan verður lesin og íhuguð og Litanía sr. Bjarna Þorsteinssonar sungin.

Páskadagsmorgunn:  Hátíðarmessa kl. 8 árdegis, sr. Bryndís Malla Elídóttir þjónar.  Þá verður páskakertið tendrað, sem lýsir í kirkjunni næsta árið sem vitnisburður um sigur lífsins.  Að messu lokinni verður sameiginlegur morgunverður í safnaðarheimilinu, þar sem allir eru hvattir til að taka með sér eitthvert meðlæti á sameiginlegt morgunverðarhlaðborð.  Þessi samvera á páskadagsmorgni er ákaflega ánægjuleg og ómissandi þeim sem eitt sinn hafa tekið þátt.  Organisti í öllum athöfnum er Örn Magnússon og kór Breiðholtskirkju syngur.

Guð gefi blessunarrríka bænadaga og gleðilega páska.