Sunnudagaskóli kl. 11, ath. síðasta tækifæri vetrarins til þess að mæta í sunnudagaskólann! Steinunn Leifsdóttir hefur umsjón með stundinni og segir frá boðskap páskanna. Sunnudagaskólinn verður allan tímann í kirkjunni og síðan verður boðið upp á ávaxtahressingu í anddyrinu. Verið velkomin í síðasta sunnudagaskóla vetrarins.
Fermingarmessa kl. 13:30, sr. Bryndís Malla Elídóttir og sr. Gísli Jónasson þjóna. Organisti er Douglas Brotchie og kór kirkjunnar syngur. Fermd verða: Brynjar Snær Ísfeld Erlendsson, Eva María Thorarensen, Hafþór Pálmi Oddsson, Lilja Maren Elíasdóttir, Liv Sunneva Einarsdóttir, Rosalie Rut Sigrúnardóttir, Vigdís Björnsdóttir og Vilhjálmur Páll Thorarensen.