Það verður notaleg stund í sunnudagaskólanum 6. apríl kl. 11. Steinunn Leifsdóttir segir sögu og syngur með börnunum. Allir fá mynd til þess að lita og fallegan límmiða. Síðan verður ávaxtahressing í lokin. Þetta er næst síðasti sunnudagaskólinn í vetur, síðasti sunnudagskólinn verður 13. apríl á pálmasunnudag.