Sunnudagaskóli kl. 11, Steinunn Leifsdóttir sér um stundina.  Í sunnudagaskólanum er sögð saga úr Biblíunni, kenndar bænir og mikið sungið.  Stundum koma góðir gestir í heimsókn eins og hún Tófa eða Rebbi refur.  Í lokinn er boðið upp á hressingu og fallega mynd til þess að lita.

Messa kl. 11, sr. Bryndís Malla Elídóttir þjónar, guðspjall dagsins er Matteus 8:23-27.  Organisti er Örn Magnússon og kirkjukórinn syngur.  Messuhópur tekur virkan þátt, les ritningarlestra, bænir og býður alla velkomna í anddyrinu.  Molasopi í safnaðarheimilinu að messu lokinni.