Aðfangadagskvöld: Aftansöngur kl. 18. Sr. Bryndís Malla Elídóttir þjónar. Marta Guðrún Halldórsdóttir syngur einsöng.
Jóladagur: Hátíðarguðsþjónusta kl. 11. Sr. Gísli Jónasson þjónar, guðsþjónustunni verður útvarpað á Rás 1. Össur Ingi Jónsson mun leika á óbó og Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir á fiðlu.
Annar í jólum: Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14. Sr. Bryndís Malla Elídóttir þjónar. Stúlknakór Reykjavíkur syngur undir stjórn Margrétar Pálmadóttur og stúlkur úr Skólahljómsveit Árbæjar og Breiðholts leika á horn. Fermingarbörn lesa jólasögu og kveikja á kertum fyrir börn í stríðshrjáðum löndum.
Gamlárskvöld: Aftansöngur kl. 18. Dr. Sigurjón Árni Eyjólfsson þjónar. Leikið verður á orgel og trompet í kirkjunni frá kl. 17:30.
Nýársdagur: Hátíðarmessa kl. 14. Sr. Bryndís Malla Elídóttir þjónar.
Organisti í öllum athöfnum er Örn Magnússon og kór Breiðholtskirkju syngur.
Gleðileg jól!