Sunnudagaskóli kl. 11 í umsjá Steinunnar Leifsdóttur.   Jólasaga og jólasöngvar verða í fyrirrúmi.  Kveikt verður á þriðja aðventukertinu, dansað og sungið í kringum jólatréð og öll börn fá glaðning í lok stundarinnar.

Messa kl. 11, sr. Gísli Jónassonar þjónar, Örn Magnússon leikur á orgelið og kór kirkjunnar syngur.  Messuhópur tekur virkan þátt með aðstoð fermingarbarna.  Kaffi, piparkökur og notalegt spjall í safnaðarheimilinu að messu lokinni.