Sunnudaginn 24. nóvember:

Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.  Sagan af Daníel í ljónagrifjunni, Fróði og Rebbi refur koma í heimsókn og sungnir verða barnasálmar og hreyfisöngvar.  Sunnudagaskólabörnin og fermingarbörn vetrarins eru hvött til þátttöku.  Djús, kex og kaffi í safnaðarheimilinu í lokin.

Tómasarmessa kl. 20.  Yfirskrift messunnar er: „Sá sem trúir hefur eilíft líf“.  Sr. Gunnar Jóhannesson prédikar,  Þorvaldur Halldórsson sér um tónlistina og guðfræðinemar taka virkan þátt.  Fyrirbænin skipar stóran sess í messunni og gefur dýrmætt tækifæri til þess að leggja allt fram fyrir Guð í bæn.  Molasopi í safnaðarheimilinu að messu lokinni.