Í sumar verður kyrrðarstund alla miðvikudaga kl. 12.  Stundirnar helgast af íhugun, orði Guðs, altarisakramentinu og fyrirbæn.  Létt hádegishressing er eftir hverja stund í safnaðarheimilinu.  Tekið er á móti bænarefnum í síma kirkjunnar 587 1500 og á stundum sjálfum.  Allir eru hjartanlega velkomnir.