Sunnudaginn 2. júní verður sameiginleg messa Breiðholtssafnaðanna í Breiðholtskirkju kl. 20 – ath. breyttan messutíma.  Á undan messunni verður gengið um Breiðholtið eftir fallegum göngustígum og staldrað við á áhugaverðum stöðum í hverfinu þar sem nýjum sjónarhornum verður gefin sérstök athygli.  Lagt verður af stað í gönguna kl. 19:00 frá Breiðholtskirkju og komið aftur til baka í tæka tíð fyrir messuna sem hefst kl. 20.  Sr. Gísli Jónasson prédikar og þjónar fyrir altari.  Messuhópur tekur virkan þátt ásamt Þóreyju Dögg Jónsdóttur djákna.  Kaffiveitingar í safnaðarheimilinu að messu lokinni.

Njótum sumarsins og tökum þátt í hressandi kvöldgöngu og gefandi kvöldstund í kirkjunni.