Fermingarmessa á hvítasunnudag 19. maí kl. 11. Sr. Bryndís Malla Elídóttir og sr. Gísli Jónasson þjóna. Örn Magnússon er organisti og Kór Breiðholtskirkju syngur. Fermd verða: Agnes Eir Jóhannsdóttir, Anna Halldóra N. Snorradóttir, Anna Sigrún Birgisdóttir, Guðbjörn Viðar Pálsson, Inga Jóna Vilhjálmsdóttir og Skúli Kristjánsson.
Á hvítasunnudag verður sýning á málverkum Bjargar Atla formlega opnuð á vegum Hollvinafélagsins í anddyrir kirkjunnar. Sýningin mun prýða anddyrið næstu vikurnar.
Gleðilega hvítasunnu!