Það var fallegt veður þegar lagt var af stað í safnaðarferð síðast liðinn sunnudag.  Góður hópur á öllum aldri tók þátt í ferðinni og átti saman skemmtilegan dag.  Í Þorlákskirkju var tekið vel á móti hópnum og sagði kirkjuvörðurinn frá byggingu og sögu kirkjunnar.  Síðan var farið í gler-gallery – Hönd í höfn – og þar sem hugvit og listfengi nýtur sýn í fallegum munum.  Í Standarkirkju var góður andi og þangað var gott að koma.  Í Krýsuvík var síðasti áningarstaðurinn og þar skoðaði hópurinn hverasvæði og fékk síðan hressingu í boði Hollvinafélagsins.  Veðrið lék við okkur allan daginn þó örlítið kalt væri suður með sjó.  Og nú má strax fara hlakka til næstur safnaðarferðar að ári.