13. mars 2013 eru 25 ár síðan Breiðholtskirkja var vígð. Af því tilefni verður viðamikil dagskrá þar sem tímamótanna er minnst með margvíslegum hætti. Á sjálfan afmælisdaginn nk. miðvikudag verður afmælishátíð frá hádegi og fram á kvöld.
Kl. 12:00 kyrrðarstund með hugleiðingu, fyrirbæn og máltíð Drottins. Léttur hádegisverður í safnaðarheimilinu að stundinni lokinni.
Kl. 13:15 samvera eldri borgara. Hljómsveitin Friðarliljurnar leikur og syngur, einsöngur, leynigestur og hnallþóruboð.
Kl. 16:00 kirkjukrakkar, afmælishátíð, kaka, blöðrur og afmælisleikir
Kl. 17:30 TTT, afmæliskaka, gleði og glens
Kl. 20:00 Hátíðarmessa. Prestar og djákni kirkjunnar þjóna ásamt sóknarnefnd. Biskup Íslands frú Agnes M. Sigurðardóttir prédikar. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Arnar Magnússonar. Ásgeir Steingrímsson og Eiríkur Örn Pálsson leika á trompet. Skólahljómsveit Árbæjar- og Breiðholts leikur létt lög í anddyri kirkjunnar áður en messan hefst. Kvennfélag Breiðholts býður kirkjugestum í afmæliskaffi að messu lokinni þar sem sýndar verða ljósmyndir úr safnaðarstarfinu.
Komum saman, fögnum afmæli kirkjunnar og bjóðum með okkur gestum!