Þriðja sunnudag í aðventu 16. desember kl. 11 kemur Stoppleikhópurinn í heimsókn og sýnir nýtt íslenskt jólaleikrit um Siggu og Skessuna sem komnar eru í jólaskap.  Á undan leiksýningunni kveikjum við á kertunum á aðventukransinum og syngjum um kertin þrjú.  Eftir leikritið verða áfram sungnir nokkrir jólasálmar sem koma vonandi öllum í sannkallað jólaskap.  Í lokin fá öll börn glaðning í poka og heitt verður á könnunni í safnaðarheimilinu.  Ekki missa að skemmtilegri stund í kirkjunni næst komandi sunnudag og er öllum velkomið að taka með sér gesti.