Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11.  Kveikt á fyrsta aðventukertinu og Betlehemsfjárhúsið sett upp.  Kirkjukrakkarnir syngja jólalög og börn úr skólahljómsveit Árbæjar- og Breiðholts spila nokkur lög.  Frásaga um undirbúning hinna fyrstu jóla.  En skildi jólatréð komast í fjársjóðskistuna?   Pipakökur fyrir alla í lokin. 

Aðventukvöld kl. 20.  Fjölbreytt dagskrá í tali og tónum.  Fermingarbörn flytja helgileik með táknrænum hætti og kirkjukórinn syngur jóla- og aðventusálma undir stjórn Arnar Magnússonar.  Hildigunnur Halldórsdóttir leikur á fiðlu.  Hugleiðingu kvöldsins flytur Steinunn Jóhannesdóttir rithöfundur sem meðal annars hefur skrifað um Hallgrím Pétursson og Guðrúnu Símonardóttur.   Að stundinni lokinni býður Hollvinafélagið og sóknarnefndin upp á heitt súkkulaði og kökur í safnaðarheimilinu.   Njótum helgrar stunda í upphafi aðventu og undirbúum komu frelsarans sem lagður var í jötu hin fyrstu jól.