Foreldramorgnarnir eru komnir í ganga aftur eftir sumarfrí.  Alla föstudagsmorgna milli 10 og 12 er opið hús fyrir foreldra og börn í safnaðarheimili kirkjunnar.  Góð aðstaða er fyrir ung börn og aðkoma fyrir vagna og kerrur er við safnaðarsalinn.  Einu sinni í mánuði kemur góður gestur í heimsókn með fræðslu sem miðar að umönnun ungbarna.  Umsjón með starfinu hefur Emilía G. Svavarsdóttir.