Nk. sunnudag 29. apríl verður Tómasarmessa kl. 20.  Verður þetta síðasta Tómasarmessan á þessu vori. Að vanda verður boðið upp á fyrirbæn með handayfirlagningu, einnig verður boðið upp á smurningu sbr. Jak. 5:14.  Tónlistinni stjórnar Þorvaldur Halldórsson og sönghópur leiðir lofgjörðina.  Molasopi í safnaðarheimilinu að messu lokinni.  Yfirskrift messunnar er:  Hryggð mun snúast í fögnuð!